Solla's profileSögur af Sollu og JóniPhotosBlogLists Tools Help

Solla Karls

Occupation
Interests
Heppin, skemmtileg og ánægð með lífið!!
March 31

Síðasti sundtíminn í Mosó!!

Svona var maður flottur í sundtímanum í gær..  eins og þið sjáið á myndunum hér til hliðar.  Jón bróðir kom með okkur í staðinn fyrir Stebba.  Við eigum eftir að sakna þess mikið að vera ekki í sundi hjá honum Snorra.  Hlökkum til að fara í haust á framhaldsnámskeið!!
 
Fórum í bæinn áðan, niður laugarveginn og það er svo kalt úti.. Vá.. mér er enn kalt.  Dubbi var vel dúðaður í kerrunni og fannst gaman.. Hann er mesta krúttið!! Og hann er að fara á Djúpavog á morgun...
 
En jæja.. mæli með IDOLINU í kvöld.. áfram Snorri og Ína..
March 30

Fyndið!!


How Will I Die Quiz

How Will I Die Quiz

You will die at the age of 106

You will die and eaten by Pigmies

Find out how you will die at Quizopolis.com

Quizopolis

Byrjuð aftur..

Jæja ég hef ákveðið að byrja að skrifa aftur, það eru virkilega einhverjir sem lesa þessa síðu mína já og Jóns litla auðvitað líka... ;)
En já af okkur er allt fínt að frétta, Dubburinn er orðinn 10. mánaða og tímin líður svo hratt.  Finnst eins og hann hafi fæðst fyrir viku sko.  En hann er voða duglegur og góður strákur.  Er að fara í heimsókn á Djúpavog um helgina með ömmu og afa, veit ekki alveg hvernig ég á eftir að vera án hans í 10 daga!!!!
Við erum að hætta í sundinu síðasti tíminn í dag.. við eigum eftir að sakna þess að fara ekki í mosó í sund til Snorra.. en við ætlum að vera dugleg að fara í sund í árbæinn og svona.  Svo verðum við Jón á Djúpavogi í sumar og þar er nú besta sundlaugin.. og ég verð að vinna þar.  Við verðum í sundi þar daglega.. hlakka mest til!!! Stebbi ætlar að koma til okkar um helgar og knúsa okkur..
 
En við ætlum í sundið núna.. bið að heilsa í beli... bbíb
January 03

Gleðilegt nýtt ár!!!

Jæja það er ekki seinna vænna en að koma með eins og eitt blogg á nýju ári.  Við fjölskyldan erum búin að hafa það of gott yfir jól og áramót.  Vorum fyrir vestan um jólin og það var frábært.  Of gott að fá rjúpur aftur LOKSINS LOKSINS... aldrei aftur rjúpulaus jól takk fyrir, þær eru of góðar og alveg nauðsynlegar á jólunum. 
 
JAS fékk of mikið af pökkum og hann á svo mikið af fötum núna að ég veit ekki hvað ég á að gera við þetta allt saman.. hann skiptir um föt 3svar á dag!!
 
Það er of ljúft lífið hjá okkur þessa dagana. Stebbi í fæðingarorlofi og allt svo rólegt og þægilegt.  Þægilegt að hafa hann heima!! verst að þetta verður ekki svona nema í 2 mánuði.. en þá kemur mamma til okkar og verður hjá okkur þar sem ég er að fara í skólann og mamma ætlar að gæta dubba litla á meðan sem er mjög gott, hann fær ekki betri dagmömmu heldur en hana ömmu sína, hún hefur nú alið þau nokkur upp börnin. 
 
Skólinn hjá mér byrjar 17. jan. Hlakka mikið til að byrja. Vona svo innilega að hann JAS fari að taka stútkönnuna eða pelann. það er engin leið að fá hann til að setja þetta nálægt andlitinu á sér. Hann er byrjaður að orga þegar hann sér okkur hella stoðmjólkinni í þetta.. Hann er alveg eins og pabbi hans það á bara allt að vera eins..
 
En jæja ætla að fara að taka aðeins til hendinni á heimilinu og gera eitthvað að viti.
 
Þangað til næst
December 14

VóVóVó hvað er langt síðan ég bloggaði...

Já það er loksins að maður gefur sér tíma í smá fréttir á vefinn..
 
Mikið að gera núna þegar að jólin eru að koma. Ekki nema 10 dagar til jóla.. Allt að verða klárt eða ekki á þessu heimili. Ég er alla daga að taka til en samt er allt í drasli. Helga Björg sagði við mig í gær að mér veitti nú bara ekkert af því að fá Heiðar snyrti og konuna þarna í 'allt í drasli' þættinum til mín.. ef hún 4ra ára er farin að hafa áhyggjur af þessu þá held ég að ég verði að fara að gera eitthvað.. en nóg um draslið!!
 
Jón Auðunn er bara algjör gullmoli. Hann er farinn að sofa svo vel á nóttunni og er svo hress og skemmtilegur. Við erum alltaf í sundinu og það er svo gaman. Hann er farinn að borða rúgbrauð og rófur og fleira þó honum finnist nú perugrauturinn alltaf vera bestur.. Hann ætlar að verða eins og pabbi hans.. getur ekki borðað hitt og þetta og allt verður að vera eins.. þeir eru ágætir feðgar. Við söknum nú pabba hans aðeins núna, hann er á Akureyri að vinna núna, kemur aftur á föstudaginn. Jón hann hefur það gott á meðan og sefur svo ofur vel og fær að kúra í pabbabóli á meðan og það er toppurinn.
 
Förum svo vestur í næstu viku og ætlum að eiga jól með tengdamömmu. Það er of gott að fara vestur og vera þar. Allt svo rólegt og hellingur af skemmtilegu fólki að hitta. Ætlum svo að vera hér heima um áramótin litla fjölskyldan í risinu.  Það verður gaman, en samt örugglega svolítið skrítið!
 
En já ætla að láta þetta nægja í beli... Ætla að fara panta jólakortin ekki seinna vænna.. loksins búin að ná mynd sem ég er sátt við í þau..
 
lifið vel og lengi en ekki í fatahengi!
bbíb
 
November 22

Loksins loksins...

Jæja það er ekki seinna vænna en að koma með smá færslu hér inn..
Við erum semsagt búin að fara vestur og austur og hafa það einum of gott síðustu tvær vikurnar.  Stebbi fór á rjúpuveiðar og við Jón höfðum það gott á meðan hjá tengdó og svo mömmu.  Svo kemur maður hingað og enginn miskunn, beint í ræktina og babbíið, enda líka þörf á!!! 
 
Var búin að hugsa svo margt sem ég ætlaði að skirfa hér en man svo ekkert núna loksins þegar ég kem mér í það að skrifa.. af hverju er þetta alltaf svona???
 
Við erum að fara á tónleika með frostrósunum 10. des. Hlakka svo til!!! Mikið að gera framundan, við bara að fara út alveg 3 næstu helgar.. maður kann þetta ekki lengur.  Bogga er að fara að halda upp á afmælið sitt á laugardaginn svo erum við að fara á jólahlaðborð helgina eftir það og svo tónleikana.  Jón Auðunn ætlar að vera í pössun hjá mömmu, hún bjargar öllu hún Björg
 
En jæja ætla að fara að reyna að gera hurð inn á bað.. allt að gerast hér, verið að rífa allt niður..
Bið að heilsa
October 28

Mikið að gera á stóru heimili...

Jæja það er nóg að gera þessa dagana. Arney í heimsókn og ætlar að vera fram á mánudag og það er svo þægilegt að hafa hana, hún er svo dugleg að hjálpa manni og finnt svo gaman að leika við Jón og ekki finnst dömunni á neðri hæðinni verra að hafa hana hér. Amma og afi eru líka í heimsókn og það er voða næs. Fórum á rúntinn með þau í morgun..
Jón Auðunn fór í skoðun og er orðin 7kg 160gr.. og 67.5 sm að lengd. Hann er sko allur að stækka og styrkjast. Enda farinn að fá graut 2svar á dag og svona.. hann veit sko hvað hann vill. Hann lætur það sko alveg vel í ljós.
Næturnar eru farnar að verða þægilegri.. ekki eins mikið orgað og hann var byrjaður að taka uppá. Það er bara yndislegt að eiga hann. Hann fékk svo sína aðra sprautu í morgun í rassinn.. vældi smá en svo lagaðist það. Vona bara að hann verði hress.. verði ekkert pirraður eða lasinn af henni. Ætlum nebbla að komast í sundið með hann á morgun.. hann er ekki búinn að fara í síðustu 2 tíma..
Svo idolið í kvöld á egilsstöðum.. við Arney ætlum ekki að missa af því.. ætlum að gera pizzu og alles.. hér verður aðal partýið í kvöld!!
Sjáumst.. einn að biðja um mjólk inní herbergi..
bbíb
 
Photo 1 of 4